Var að koma úr chilli frá Öddunni, borðaði með át-fagmönnunum TinTin og Herps( hahahahaha ok búið) En FH á morgun.....Ætli þær séu til í okkur?
Hey hefur einhver séð nýju myndavélina mína eða Ipodinn minn eða sléttujárnið mitt??? Langar í það aftur, ekki sátt gella Neeeee of grófur kall þessi passar betur.
Jeijjj ég á nýjan bíl. Og það er komið nafn, Toggi Spergill 2! Togginn gamli er til sölu, vill einhver eigann? Gat ekki skýrt hann neitt annað, er of tilfinningalega skyld hinum Togganum að ég held í nafnið. Sumir segja að hann megi ekki heita það sama, en það er rugl. Ætla að segja ykkur eina sögu. Einu sinni átti ég kisu sem hét Mandla og ég elskaði hana rosa mikið, en svo klessti bíll á hana og ég fékk nýja kisu og túttan leyfði mér að ráða hvað hún héti og ég skýrði hana Möndlu 2! Þannig að þetta er leyfilegt og boðar aðeins gæfu.
Sjáiðið þessar búbbur Systa og Mandla 2... Hélt það væri bannað að vera svona krúttlegur.
Fór á reunion um helgina. Öldó gengið var alveg með etta. Nönnu Myndir hér
30. ágúst 2006 klukkan 04:47
Jóna Sigríður Jónsdóttir 6 athugasemdir
Kíktum á Haukar-Þróttur áðan, eigum Þróttara í fyrsta leik í bikarnum, hlakka bara til en best að einbeita sér að leiknum sem verður á morgun núna...Get ekki beðið....
Fylkir - STJARNAN
Fórum í bestu sjoppu sem til er í öllum heiminum áðan... það er að segja hverfissjoppuna mína, Holtanesti, fengum okkur samlokur... En já já haldiðið að Garðarbæjarpakkið hafi ekki dissað hana í drasl, er ekki að fíla það, Björk byrjaði á því að taka einn bita að samlokunni og kvartaði um leið.... "ohh brauðið er svo hart, ohh þetta er ógeð, niðursoðnir sveppir ojj, of mikil sósa" Allaveganna þá fannst henni þetta það vont að hún borðaði sína ALLA svo reif hún samlokuna af Örnu og svo til að bæta söguna aðeins þá bætti hún einni samloku til viðbótar í sig, hef ekki séð annan eins gúffara!! Viðurkenndu það bara að þetta var ÆÐI!!! Ykkur verður ekki boðið næst á Holtið, þið getir bara étið það sem úti frýs í Garðabænum...
Fór með Alberti í dag í Landsbankann, hann fékk símtal um það að hann hefði unnið fartölvu, það var eitt heppið fermingarbarn sem gat unnið þennann vinning og þessi heppni Apaköttur vann hana...
Hahahahaha... þessi mynd hér að neðan er snilld. Fór með mömmu og Alberti til Sikileyjar, Fórum einn daginn að fá okkur að borða, Albert bað mig um að panta fyrir sig heví djúsí samloku og franskar með. Albert var búinn að væla allann morgunin úr svengd, og gat ekki beðið eftir að éta, svo lét hann mig panta fyrir sig þar sem ég var "pró" í ítölskunni, ekkert mál ég pantaði bara (biðum í klukkutíma eftir matnum) og hélt sem sagt að ég hefði pantað samloku OG franskar, en neee það var samloka MEÐ frönskum. Ég bleytti buxurnar úr hlátri, hann var ekki sáttur og hélt (og heldur enn) ég hefði gert þetta viljandi
Svo grenjaði hann allan daginn um þessa ógeðis samloku, aha hann át hana, og það eina sem eg man eftir á þessum matsölustað var,,Smakkaðu hana, SMAKKAÐU HANA... Nei HÆTTU þá að hlæja þarna eða ég treð þessu í þig" hahahaha
14. júní 2006 klukkan 06:02
Jóna Sigríður Jónsdóttir 13 athugasemdir
Ég ætla að segja ykkur hversu mikið Krútt hann er....Hann var svangur, og labbaði inná PizzaKing...
Pizzamaðurinn: Góðan daginn.. Litli Eiríkur : Hæ heyrðu ég ætla að fá eina pulsu hjá þér Pizzamaðurinn: Ummm....við erum ekki með pulsur, eiginlega bara pizzur Litli Eiríkur: (þarna fattaði hann að þetta hefði verið bad move) Já Ok ég fæ þá bara brauðstangir.....
En takk fyrir ísrúntinn.... Hefðum samt átt að ræna sjoppuna í alvörunni áðan, ég sá að hann var smeikur við okkur... Hann var hræddur við hvítu buxurnar!!!
Unnum Keflavík 3-1!!!!!
Og já....er þetta ekki víti???
Dómarinn ekki alveg með þetta þarna... hehehe
Passið ykkur svo eða ég tækla ykkur í miltað... Neeeeeee..... Peace
09. júní 2006 klukkan 06:06
Jóna Sigríður Jónsdóttir 6 athugasemdir
Jább þetta er nú alveg orðið opinbert.....Við erum par ég og Magga..... neeeeee róóóum, ekki soleis par, við eru Hafsentspar!! Ég var búin að lofa henni að blogga í dag og ég mundi ALDREI svíkja hana. Ég var að pæla, að ef ég myndi ættleiða barn þá mundi ég vilja ættleiða Möggu, hún er snillingur, sjiggassjiggabangbang
Þessi mynd lýsir henni best....
Unnum Þór/Ka á Akureyri síðast. Í kvöld er það Keflavík á okkar heimavelli klukkan 19:15 Hörkuleikur!!
Vá hvað þetta er fyndið sem Flóðinn var að sýna mér...... Fyrir ykkur aumingjana sem kunnið ekki að spila fótbolta tékkið á þessu
07. júní 2006 klukkan 21:59
Jóna Sigríður Jónsdóttir 8 athugasemdir
Jamm...unnum KR 2-1. Á eftir er það Þór/KA, fljúgum eftir smá, Bebe...bunny á fléttur frá þér!!! Ættum að vera vel stemmdar eftir mestu hlunka/chill helgi sem ég hef upplifað..
Hér eru Flóðamyndir frá miðvikudags/túlípana-kvöldinu
30. maí 2006 klukkan 19:56
Jóna Sigríður Jónsdóttir 12 athugasemdir
Jæja...KR á morgun og ég er til í nokkrar skrámur!
Potturinn í dag var frekar heitur... Reyndum að finna út hvað þeir sem voru með okkur í pottinum verða í framtíðinni... Aha nokkuð gaman sjáðu til! Kadý verður dirty námukona í Berlín, Nanna verður Kona í stórum slopp með stór gleraugu í tilraunastarfsemi, Helga verður sjúkraþjálfari og verður rík á að hjúkra okkur öllum, Soffía verður sálfræðingur sem gefur reyndar bara ráðgjöf þegar hún er full þannig að það verður bara opið hjá henni efir miðnætti eða nei hún verður kannski heilaskurðlæknir vegna þess að hún er ekkert skjálfhent, ég verð strandarvörður á Ítalíu að þykjast passa að fólk kafni ekki í sjónum, Auður verðu innheimtukona í dragt....Hún er nottla fokk hörð og er að standa sig í peningareitnum, Magga verður úfff man ekki...hmmmm....jú ég veit, hún mun flytja inn útlenskar fótboltapjöllur frá Serbíu og í kring til Íslands, hún verður fótboltapimp, hún er nú þegar komin með sambönd frá Júgóslavíu og Króatíu :) Þær eru að fíla hana...
Og já...á ég að segja ykkur svolítið...Úff...nágranni minn er með pott á veröndinni sinni sem er lokuð af með grindverki, nema hvað að mitt hús sér ofaná þennan lokaða pall, og já haldið þið að félaginn fari ekki bara alltaf úr sundskýlunni sinni til að þerra bossann eftir pottinn og er svo bara að dilla sér í nokkurn tíma uppá fun-ið! Og viti menn...þessi nágranni minn er gamli skólastjórinn minn úr grunnskólanum mínum, er þetta nokkuð töff, má þetta bara??
Svo dó Toggi Spergill í smástund áðan! Og nei í þetta skipti var hann ekki bensínlaus, var NÝbúin að fylla hann, en hann drapst í mestu umferðinni og Hazzard ljósin virkuðu ekki!!! Þannig að ég þurfti að sitja eins og dorkur inní bílnum og benda öllum að fara frammhjá!! Fékk 3 símtöl meðan Nanna var á leiðinni að sækja mig frá félögum sem fannst þetta fyndnara en mér... Við erum að tala um að það drapst á honum um leið og Björk sendir mér sms, í því stóð orðrétt ,, Djö... tekur þú þig vel út í honum Togga beibí! :-) " þá hafði hún verið nýbúin að keyra frammhjá mér þegar Toggi var lifandi!!! Gaui er samt búin að lífga hann við núna!
Augun eru byrjuð að límast saman..... zzzZZzzzZZzZZZZZzzz
23. maí 2006 klukkan 05:29
Jóna Sigríður Jónsdóttir 8 athugasemdir
Þessi Gella var að útskrifast úr FG, en hún útskrifaðist ekki bara þaðan. Hún sá ljósið og útskrifaði sig einnig úr Brúnku-Liði stjörnunnar. Og ekki reyna að segja mér að Flóðinn sé enn dökkhærður, þar sem ég splæsti í rándýramynd sem sönnunargagn!!
21. maí 2006 klukkan 19:14
Jóna Sigríður Jónsdóttir 6 athugasemdir
Ojjj...Hata EuroVision, ætla ekki að horfa á keppnina á lau... Mæti bara í útskriftargrill til Hörpu og já líka útskriftina hans Trausta. Svo mæli ég með því að Ísland skrái sig úr þessari keppni, nenni ekki að pirrast svona árlega. En ég er samt að fíla Silvíu í drasl!!!
En ég á fallegasta frænda í heimi.... Hann Keanu Reyr, elska hann útaf lífinu!
Má bara vera svona mikið rassgat??
Annars borðuðum við hlunkarnir afmælisKökuna hennar Kadýar hjá Ausu áðan, sem Nanna gerði (ég hjálpaði með því að sýna henni andlegan símastuðning) ætluðum sem sagt að gefa henni hana síðasta þriðjudag en afmælisbarnið var horfið áður en ég náði svitanum af mér í sturtunni...reyndum að ná henni, eltum hana hálfa leið uppá Skaga, löggan stoppaði okkur, reyndum að stinga hana af en þá sprakk á dekkinu og felgan beyglaðist þvílíkt og ég missti stjórn á bílnum og velti honum á kind sem var að eiga lítil lömb...ÞANNIG AÐ ég reyndi allavega! Nanna náði samt að skutla sér fyrir kökuna og hún bragðaðist vel án Kadýar.
ps: lömbin lifa enn, eitt lamaðist fyrir neðan mitti enn er samt í fuuuulluuuu fjjjöööri
19. maí 2006 klukkan 06:20
Jóna Sigríður Jónsdóttir 6 athugasemdir